Ferill 363. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 374  —  363. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um samskipti við heilbrigðisstarfsfólk.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hefur verið kannað hversu oft sjúklingur hefur ekki getað greint frá einkennum sínum í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk? Ef svo er, hvað leiddi könnunin í ljós? Ef svo er ekki, kæmi til greina að kanna hversu oft slíkt gerist?
     2.      Kæmi til greina að útbúa íslenska þýðingu á orðum og hugtökum er snerta algenga verki, líkt og finna má á síðunni sayyourpain.com þar sem sjúklingar geta valið tungumál og bent á hvað amar að þeim?


Skriflegt svar óskast.